Boðun til aðalfundar Íslenska NoseWork klúbbsins
- throsturfh
- Mar 15
- 4 min read
Aðalfundur Íslenska NoseWork klúbbsins verður haldinn mánudaginn 30. mars næstkomandi kl. 19:30
Fundurinn fer fram í húsnæði Krabbameinsfélags Árnessýslu, Eyravegi 31, 800 Selfossi.
Skipulag fundarins er eins og kemur fram hér að neðan:
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar lögð fram
Reikningar lagðir fram til samþykktar
Kosning um laust sæti í stjórn
Kosning um uppfærslu á bæði keppnisreglum ÍNWK og handbók dómara
Önnur mál
Heiðrun stigahæstu teyma ársins 2025.
Kosið verður um eitt sæti í aðalstjórn, stöðu gjaldkera. Núverandi gjaldkeri gefur ekki kost á sér í áframhaldandi gjaldkerastarf.
Lögð verður fyrir kosningu aðalfundar uppfærðar NoseWork reglur ÍNWK sem og uppfærða handbók dómara til samræmis við uppfærslu á báðum skjölum sem hafa átt sér stað síðustu fimm ár hjá sænska NoseWork klúbbnum.
Hér er að finna helstu breytingar á NoseWork reglunum:
Hvolpafullum tíkum er óheimilt að keppa 30 dögum fyrir got og 75 daga eftir got.
Hundur sem er verkjaðu, veikur eða slasaður má ekki taka þátt í lyktarprófum eða keppnum ef það hefur áhrif á frammistöðu hans.
Hundum er heimilt að keppa í fatnaði þegar aðstæður eru til, t.d. þegar kalt er í veðri eða mikil rigning. Fatnaður skal þó hvorki þrengja of mikið að hundinum né dragast eftir leitarsvæðum.
Skýrt er kveðið á um að ekki megi nota teygjutaum í keppnum.
Skilgreining á farartæki/fólksbíl/vinnuvélum hefur verið skýrð nánar.
o Farartæki teljast hjálpartæki til flutninga á manneskjum eða vörum, t.d. fólksbíll, vörubíll, vinnuvélar, eftirvagn eða kerra.
o Skilgreining á fólksbíl. Sedan- eða station bílar og bílar af gerðinni „caddy“ flokkast sem fólksbílar. Þessi ökutæki teljast í keppnum til fólksbíla jafnvel þó þeir séu skráðir sem léttir vörubílar. Önnur farartæki teljast ekki sem fólksbílar jafnvel þótt þeir séu skráðir sem fólksbílar.
Ákvæði um villur í farartækjaleit hefur verið skýrt nánar. Ein villa er veitt þegar hundur setur loppurnar á annað en dekk fólksbíls.
Sett hefur verið inn nánari skýring á því hvað fellst í villu í flokki 1 fyrir að refsa hundinum. Ákvæðið hljómar nú svo: Stjórnandinn leiðréttir eða refsar hundinum, t.d með því að segja „nei“ og hundurinn upplifir það neikvætt, að stjórnandi rykki í tauminn, að stjórnandi neyði hund til að leita áfram með hendi eða hné eða að stjórnandi valdi hundinum streitu á meðan leit stendur með neikvæðu tali.
Ákvæði hefur verið sett um að hundi sé óheimilt að keppa með öðrum stjórnanda í tveimur flokkum fyrir neðan sig, þ.e. hundur sem keppir í NW3 getur ekki keppt í NW1 með öðrum stjórnanda.
Ákvæðum um að færast niður um flokk hafa verið skýrð nánar. Það gerist ekki sjálfkrafa eins og núverandi reglur kveða á um heldur getur teymi óskað eftir því.
Sett hefur verið inn ákvæði um hvað þurfi að gera til að komast aftur upp um flokk hafi teymi óskað eftir að flytjast niður um flokk. Til að komast aftur upp um flokk þarf teymið að ná þremur viðurkenningum í þeim keppnisflokki.
Sett hefur verið inn ákvæði um meistaratitla í NoseWork: Teymi sem hlotið hafa þjár viðurkenningar í hverjum keppnisflokki, samtals 15 viðurkenningar hljóta tiltilinn íslenskur NoseWork meistari í viðkomandi flokki, þ.e. íslenskur NoseWork 1 meistari, íslenskur NoseWork 2 meistari o.s.frv.
Ákvæði um sérstæða viðurkenningu hefur verið breytt þannig að slíkt viðurkenning er veitt af einum dómara en ekki tveimur eins og núverandi reglur kveða á um.
Að öðru leiti er um að ræða smávægilegar breytingar, breytingar á uppsetningu og málfari.
Hér er reglur ÍNWK eins og þær eru í dag:
Hér er tilllaga að breyttum reglum ÍNWK:
Hér eru helstu breytingar á handbók dómara:
Sett eru inn ákvæði sem skylda dómara til að nota forrit sem vistað er á www.minarsidur.inwk.is við skráningar í keppnir og dæmingu þeirra í stað eyðublaða sem núverandi reglur kveða á um að skuli gera.
Eftirfarandi tveimur ákvæðum er bætt við kaflann um ákvörðun dómara á hámarksleitartíma á svæðið:
o Ef hætta er til staðar að lyktarmyndin geti breiðst út fyrir leitarsvæðið ætti dómari að bæta við meiri tíma við leitartíma.
o Þegar um er að ræða ílátaleit ætti dómari að gera ráð fyrir þremur sekúndum í leitartíma fyrir hvert ílát en þó aldrei skemmri leitartími en ein mínúta.
Ákvæði um það þegar stjórnandi segir „búinn“ hafa verið skýrð nánar og leiðbeiningar um slíkt (sjá 8.9, 8.10 og 8.11).
Við ákvæði um heimild dómara til að dæma tæknivillu hefur verið bætt við ákvæði hvernig það skuli gert (sjá 13.3. og 13.4).
Settur hefur verið inn kafli 16 um áverka á leitarsvæði sem leiða til villu og skýringar á því hvenær og hvenær skuli ekki veita slíka villu.
Settur hefur verið inn kafli 22 um leiðbeiningar um hvar ekki má setja felur.
Að öðru leiti er um að ræða smávægilegar breytingar.
Hér er handbók dómara eins og hún er í dag:
Hér er tillaga að breytingum á handbók dómara:
Til þess að hafa kjörgengi á fundinum þarf að vera búið að greiða félagsgjöld en greiðsluseðlar hafa verið sendir í heimabanka. Ef þú hefur ekki fengið seðilinn sendan eða villt gerast meðlimur máttu gjarnan senda okkur tölvupóst á netfangið inwk@inwk.is
Fundinum verður streymt í gegnum fjarfundarbúnað og geta greiðandi meðlimir fengið aðgang að fundinum en viðkomandi geta ekki kosið um málefni fundarins. Þeir sem óska eftir því að taka þátt í gegnum fjarfundarbúnað verða að senda tölvupóst á inwk@inwk.is þar sem þeir óska eftir þáttöku og upplýsa um netfng til að senda fundarboðin á. Klúbburinn ábyrgist ekki gæði á útsetningu og hljóði fundaris en allt verður gert til að slíkt verði með besta móti.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Fyrir hönd stjórnar
Jónína Guðmundsdóttir, formaður ÍNWK

Comments